Útboð - malbikun göngustíga
Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið: Urriðaholt – Malbikun göngustíga 2018
Verkið felst í jarðvegsskiptum, jöfnun yfirborðs stíga með mulningi og malbikun þeirra í nýju íbúðahverfi í Urriðaholti. Verkinu skal lokið fyrir 15. september 2018.
Helstu magntölur eru:
Jöfnun og
hreinsun í stígstæðum 6.400 m2
Burðarlag 360 m3
Mulningur 270 m3
Malbikun 6.370 m2
Jarðstrengir 300 m
Uppsetning
ljósapolla 50 stk
Útboðsgögn er hægt að nálgast hjá Eflu verkfræðistofu, Höfðabakka 9, 110 Reykjavík.
Tilboð verða opnuð hjá Eflu verkfræðistofu, Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, föstudaginn 8. júní 2018, kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska.