Útboð: Sorphirða Garðabæjar og Mosfellsbæjar

16. mar. 2021

Sorphirða Garðabæjar og Mosfellsbæjar 2021 - 2023.

Garðabær og Mosfellsbær óska eftir tilboðum í verkið: Sorphirða Garðabæjar og Mosfellsbæjar 2021 - 2023.
Verkið fellst í tæmingu á sorp- og endurvinnsluílátum við íbúðarhúsnæði í Garðabæ og Mosfellsbæ ásamt flutningi til móttökustöðvar.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Útboðsgögn fást send frá og með þriðjudegi 16. mars 2021. Sendið beiðni á utbod@efla.is og gefið upp nafn samskiptaaðila í útboði, símanúmer og netfang.

Tilboðum skal skilað til EFLU verkfræðistofu, Lyngháls 4, Reykjavík fyrir kl 11.00 þriðjudaginn 27. apríl 2021 og verða þau opnuð þar.