Vetrarbraut – 2. áfangi. Hnoðraholt - Vífilsstaðavegur -Gatnagerð og lagnir - Eftirlit

28. feb. 2022

Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið: Vetrarbraut – 2. áfangi. Hnoðraholt - Vífilsstaðavegur -Gatnagerð og lagnir - Eftirlit

Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið: Vetrarbraut – 2. áfangi. Hnoðraholt - Vífilsstaðavegur -Gatnagerð og lagnir - Eftirlit.

Eftirlitsverkið felst í því að hafa eftirlit fyrir Garðabæ, Veitur, Ljósleiðarann og Mílu með útboðsverkinu: Vetrarbraut – 2. áfangi. Hnoðraholt – Vífilsstaðavegur, gatnagerð og lagnir. Í útboðsverkinu er um að ræða nýbyggingu á öðrum áfanga Vetrarbrautar frá Hnoðraholti að Vífilsstaðavegi og uppbyggingu á nýju íbúða- og atvinnuhverfi í Vetrarmýri. Um er að ræða gerð gatna- og stígagerð, bílastæði, lagnavinnu við fráveitu-, hitaveitu-, vatns- og rafmagnslagnir.

Gerðar eru kröfur um að eftirlitsaðili hafi góða þekkingu og reynslu af sambærilegum verkum. Eftirlitsaðili skal annast allar nauðsynlegar mælingar og mæla inn allar lagnir veitufyrirtækja.

Eftirlitsverkið skal vinna samkvæmt útboðs- og verklýsingu auk verksamninga og annarra fylgigagna samnings um ofangreint útboðsverk.

Útboðsverkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 15. júlí 2023. Eftirlitsaðili skal standa að fullu við sínar skuldbindingar eigi síðar en 15. september 2023.

Útboðsgögn má nálgast hér á vef Garðabæjar, gardabaer.is, frá og með mánudeginum 28. febrúar.

Tilboð verða opnuð með rafrænum hætti á hjá Eflu hf, Lynghálsi 4, fimmtudaginn 10. mars 2022 klukkan 11.00.

Útboðsgögn