Vetrarþjónusta gatna í Garðabæ 2021-2024 (EES)

16. júl. 2021

Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið Vetrarþjónusta gatna í Garðabæ 2021-2024.

Verkið felst í snjóruðningi og hálkueyðingu gatna í þrjá vetur, þ.e. veturna 2021-2022, 2022 2023 og 2023-2024. Um er að ræða allar helstu umferðargötur í Garðabæ.

Helstu magntölur eru:
• Forgangur 1: Götulengd; 15 km
• Forgangur 2: Götulengd; 45 km

Útboðsgögn er hægt hér fyrir neðan nálgast á vef Garðabæjar.

Tilboðum skal skilað á netfangið utbod@mannvit.is fyrir kl. 11:00 þann 17. ágúst 2021.
Opnunarfundur verður ekki opinn bjóðendum. Fundargerð verður send öllum bjóðendum eftir opnun tilboða.

Útboðsgögn