Vetrarþjónusta stofnanalóða og húsagatna í Garðabæ 2021-2024 (EES)

15. júl. 2021

Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið Vetrarþjónusta stofnanalóða og húsagatna í Garðabæ 2021-2024.

Verkið felst í snjóruðningi og hálkueyðingu á bílastæðum stofnana og í húsagötum í þrjá vetur, þ.e. veturna 2021-2022, 2022‑2023 og 2023-2024. Um er að ræða bílastæði á öllum helstu stofnanalóðum í Garðabæ og húsagötur.

Helstu magntölur eru:

  • Húsagötur 300 km
  • Leikskólar 11.130 m2
  • Grunnskólar 11.310 m2
  • Íþróttamiðstöðvar 16.830 m2
  • Kirkjur 4.750 m2
  • Aðrar stofnanir 11.160 m2

Útboðsgögn er hægt að nálgast hér fyrir neðan á vef Garðabæjar.

Tilboðum skal skilað á netfangið utbod@mannvit.is fyrir kl. 11:30 þann 17. ágúst 2021.
Opnunarfundur verður ekki opinn bjóðendum. Fundargerð verður send öllum bjóðendum eftir opnun tilboða. 

Útboðsgögn