Samþykkt og gildistaka skipulagsáætlana

Hér má nálgast upplýsingar um samþykktir bæjarstjórnar og gildistöku þeirra deiliskipulagsáætlana sem gerðar voru athugasemdir við í auglýsingaferli. Upplýsingarnar varða deiliskipulagsáætlanir sem voru samþykktar frá október 2019.

Upplýsingar um samþykktir og gildistöku annarra deiliskipulagsáætlana eru aðgengilegar á kortavef Garðabæjar og skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar.

Ákvarðanir bæjarstjórnar um deiliskipulagsáætlanir eru stjórnvaldsákvarðanir sem eru kæranlegar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku deiliskipulagsáætlunar í B-deild Stjórnartíðinda.


Bæjargarður, breyting á deiliskipulagi

19.5.2020

Breyting á deiliskipulagi

Samþykkt: Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti þann 19.03.2020 breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir bárust og hefur þeim verið svarað með umsögn sveitarstjórnar.

Gildistaka: Tillagan hefur öðlast gildi og var auglýsing birt í B-deild Stjórnartíðinda þann 15.05.2020. nr. 447/2020. Í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða bæjarstjórnar hér með auglýst. 

Bæjargarður, breyting á deiliskipulagi

Breytingartillagan gerir ráð fyrir því að skilgreind er 2ja metra há vallargirðing umhverfis gervigrasvöll. Heildarskipulag garðsins er uppfært m.t.t. fyrirliggjandi hönnunar.