Eskiás 7 og 10 - Deiliskipulagsbreyting Ása og Grunda
29.11.2024
Þann 21. nóvember sl. samþykkti Bæjarstjórn Garðabæjar tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var samþykkt að tillögu skipulagsnefndar frá fundi þann 7 . nóvember.
Samþykkt: Þann 21. nóvember sl. samþykkti Bæjarstjórn Garðabæjar tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var samþykkt að tillögu skipulagsnefndar frá fundi þann 7. nóvember.
Gildistaka : Tillagan hefur öðlast gildi og var auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 27. nóvember 2024 nr. 1339/2024. Í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða bæjarráðs hér með kynnt.
Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.
Í samræmi við 2. mgr. 31. gr. og 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða bæjarstjórnar hér með auglýst.