Samþykkt og gildistaka skipulagsáætlana

Hér má nálgast upplýsingar um samþykktir bæjarstjórnar og gildistöku þeirra deiliskipulagsáætlana sem gerðar voru athugasemdir við í auglýsingaferli. Upplýsingarnar varða deiliskipulagsáætlanir sem voru samþykktar frá október 2019.

Upplýsingar um samþykktir og gildistöku annarra deiliskipulagsáætlana eru aðgengilegar á kortavef Garðabæjar og skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar.

Ákvarðanir bæjarstjórnar um deiliskipulagsáætlanir eru stjórnvaldsákvarðanir sem eru kæranlegar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku deiliskipulagsáætlunar í B-deild Stjórnartíðinda.


Grímsgata 2-4

4.7.2022

Breyting á deiliskipulagi Urriðaholts norðurhluta 4

Grímsgata 2-4

Samþykkt: Á fundi bæjarstjórnar þann 28. júní 2022 samþykkti bæjarstjórn Garðabæjar samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, breytingu á deiliskipulagi Urriðholts norðurhluta 4.

Gildistaka: Tillagan hefur öðlast gildi og var auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 29.06.2022, nr. 772/2022 Í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða bæjarstjórnar hér með auglýst.

Í breytingunni felst að sett verður inn kvöð um 1 metra háan hljóðegg við horn Urriðaholtsstrætis og Grímsgötu.

Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.

Í samræmi við 2. mgr. 31. gr. og 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða bæjarstjórnar hér með auglýst.