Hesthúsahverfi í Breiðumýri, Álftanesi, deiliskipulag
29.12.2023
Þann 15. júní sl. samþykkti Bæjarstjórn Garðabæjar tillögu að deiliskipulagi hesthúsahverfis í Breiðumýri í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Samþykkt: Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar þann 15. júní sl. samþykkti Bæjarstjórn Garðabæjar tillögu að deiliskipulagi hesthúsahverfis í Breiðumýri í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Gildistaka : Tillagan hefur öðlast gildi og var auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 28. desember 2023 nr. 1562/2023. Í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða bæjarstjórnar hér með kynnt.
Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.
Í samræmi við 2. mgr. 31. gr. og 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða bæjarstjórnar hér með auglýst.