Keldugata 2 og 4
7.5.2021
Breyting á deiliskipulagi Urriðaholt vesturhluti
Keldugata 2 og 4, breyting
á deiliskipulagi Urriðaholt vesturhluti
Samþykkt: Á fundi bæjarstjórnar þann 18. febrúar 2021 samþykkti bæjarstjórn samkvæmt 41.
gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breytingu á deiliskipulagi vesturhluta
Urriðaholts. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.
123/2010. Athugasemdir bárust og hefur þeim verið svarað með umsögn
sveitarstjórnar.
Gildistaka: Tillagan hefur öðlast gildi og var auglýst í
B-deild Stjórnartíðinda þann 26. mars 2021 nr. 337/2021. Í samræmi við 3. mgr.
41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða bæjarstjórnar hér með auglýst.
Keldugata 2, breyting
á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluti
Breytingartillagan gerir
ráð fyrir að Keldugata 2 og 4 sameinist í eina lóð og innkeyrsla inn á lóðina
færist til.
-
Uppdráttur
Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.
Í samræmi við 2. mgr. 31. gr. og 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða bæjarstjórnar hér með auglýst