Samþykkt og gildistaka skipulagsáætlana

Hér má nálgast upplýsingar um samþykktir bæjarstjórnar og gildistöku þeirra deiliskipulagsáætlana sem gerðar voru athugasemdir við í auglýsingaferli. Upplýsingarnar varða deiliskipulagsáætlanir sem voru samþykktar frá október 2019.

Upplýsingar um samþykktir og gildistöku annarra deiliskipulagsáætlana eru aðgengilegar á kortavef Garðabæjar og skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar.

Ákvarðanir bæjarstjórnar um deiliskipulagsáætlanir eru stjórnvaldsákvarðanir sem eru kæranlegar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku deiliskipulagsáætlunar í B-deild Stjórnartíðinda.


Rammahluti Vífilsstaðalands - Breyting á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030

20.10.2023

Þann 19. október sl. samþykkti Bæjarstjórn Garðabæjar tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 - Rammahluti Vífilsstaðalands í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.

Samþykkt: Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar þann 19. október sl. samþykkti bæjarstjórn tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar - Rammahluti Vífilsstaðalands í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.

Gildistaka : Tillagan hefur öðlast gildi og var auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 23. nóvember 2023 nr. 1256/2023. Í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða bæjarstjórnar hér með kynnt.


Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.