Samþykkt og gildistaka skipulagsáætlana

Hér má nálgast upplýsingar um samþykktir bæjarstjórnar og gildistöku þeirra deiliskipulagsáætlana sem gerðar voru athugasemdir við í auglýsingaferli. Upplýsingarnar varða deiliskipulagsáætlanir sem voru samþykktar frá október 2019.

Upplýsingar um samþykktir og gildistöku annarra deiliskipulagsáætlana eru aðgengilegar á kortavef Garðabæjar og skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar.

Ákvarðanir bæjarstjórnar um deiliskipulagsáætlanir eru stjórnvaldsákvarðanir sem eru kæranlegar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku deiliskipulagsáætlunar í B-deild Stjórnartíðinda.


Uppsátur og naust, breyting á deiliskipulagi Garðahverfis

7.5.2021

Deiliskipulagsbreyting

Uppsátur og naust, breyting á deiliskipulagi Garðahverfis

Samþykkt: Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar þann 14. júní 2020 samþykkti bæjarstjórn samkvæmt 1.mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 41. Gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir bárust og hefur þeim verið svarað með umsögn sveitarstjórnar.

Gildistaka: Tillagan hefur öðlast gildi og var auglýsing birt í B-deild Stjórnartíðinda þann 29. apríl 2021 nr. 469/2021. Í samræmi við 3. mgr. 41. gr. er niðurstaða bæjarstjórnar hér með auglýst.

Uppsátur og naust, breyting á deiliskipulagi Garðahverfis.

Breytingartillagan gerir ráð fyrir lóð og byggingareit fyrir uppsátur og naust.

  •  Uppdráttur 

Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. 

Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda. Í samræmi við 2. mgr. 31. gr. og 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða bæjarstjórnar hér með auglýst.