Vetrarmýri - Deiliskipulagsbreyting
29.8.2025
Þann 24. júní 2025 samþykkti bæjarráð Garðabæjar, skv. heimild í 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var samþykkt að tillögu skipulagsnefndar frá fundi 19. júní 2025.
Samþykkt: Þann 24. júní 2025 samþykkti bæjarráð Garðabæjar, skv. heimild í 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var samþykkt að tillögu skipulagsnefndar frá fundi 19. júní 2025.
Samþykktri tillögu bárust ábendingar frá Skipulagsstofnun og eru viðbrögð við þeim kynnt hér með.
Gildistaka: Tillagan bíður samþykkis í B-deild stjórnartíðinda.
Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.
Í samræmi við 2. mgr. 31. gr. og 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða bæjarstjórnar hér með auglýst.