Vinastræti 22-28 - Deiliskipulagsbreyting
26.6.2024
Þann 18. apríl sl. samþykkti Bæjarstjórn Garðabæjar tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Samþykkt: Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar þann 18. apríl sl. samþykkti Bæjarstjórn Garðabæjar tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Gildistaka : Tillagan hefur öðlast gildi og var auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 25. júní 2024 nr. 738/2024. Í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða bæjarstjórnar hér með kynnt.
Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.
Í samræmi við 2. mgr. 31. gr. og 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða bæjarstjórnar hér með auglýst.