Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.


Arnarland - Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030

7.6.2024

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030, sem nær til Arnarlands (Arnarnesháls) í samræmi við 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030, sem nær til Arnarlands (Arnarnesháls) í samræmi við 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Svæðið sem tillögurnar ná til afmarkast af Hafnarfjarðarvegi, Arnarnesvegi, Fífuhvammsvegi og bæjarmörkum við Kópavog.

Tillagan gerir ráð fyrir því að reit fyrir verslun og þjónustu, 3.37 Vþ, í gildandi Aðalskipulagi Garðabæjar verði breytt í miðsvæði (M). Á svæðinu er gert ráð fyrir þéttri blandaðri byggð, með áherslu á heilsutengda starfsemi og uppbyggingu íbúðabyggðar m.a. í samræmi við markmið um uppbyggingu á samgöngu og þróunarás. Hámarkshæð verður almennt 3-6 hæðir en kennileitisbygging næst Hafnarfjarðarvegi geti orðið allt að 8 hæðir. Aðkoma verður frá Fífuhvammsvegi og um göng undir Arnarnesveg frá Akrabraut. Gert er ráð fyrir því að Borgarlína sem fylgir Hafnarfjarðarvegi liggi um svæðið.

Tillagan er auglýst samhliða tillögu að deiliskipulagi sama svæðis.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn rafrænar athugasemdir til og með 6. ágúst 2024 í gegnum vef skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is (mál: 557/2023) eða á netfangið skipulag@gardabaer.is.