Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.


Arnarnesvegur - Verkefnalýsing

28.5.2025

Bæjarstjórnir Kópavogs og Garðabæjar hafa samþykkt lýsingu fyrir gerð deiliskipulags fyrir Arnarnesveg í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórnir Kópavogs og Garðabæjar hafa samþykkt lýsingu fyrir gerð deiliskipulags fyrir Arnarnesveg í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Deiliskipulagsgerðin nær til tveggja svæða á Arnarnesvegi, annarsvegar 1,6 km kafla milli Hafnarfjarðarvegar og Reykjanesbrautar og hinsvegar 1,1 km kafla á milli Fífuhvammsvegar og Rjúpnavegar og verður um tvær aðskildar áætlanir að ræða.

Deiliskipulagssvæðið milli Hafnarfjaðarvegar og Reykjanesbrautar er innan lögsögu Garðabæjar og Kópavogsbæjar og verður því um sameiginlega deiliskipulagsáætlun að ræða. Deiliskipulagssvæði milli Fífuhvammsvegar og Rjúpnahæðar er innan lögsögu Kópavogs.

Deiliskipulagslýsingin er einnig aðgengileg á vef skipulagsgáttar (mál: 660/2025 og 717/2025).



Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gerfinn kostur á að senda inn rafrænar ábendingar til og með 18. júní 2025 í gegnum vef skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is