Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Bæjargarður

21.5.2019

Tillaga að breytingu deiliskipulags

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu á eftirfarandi deiliskipulagsáætlun í samræmi við 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjargarður. Tillaga að breytingun deiliskipulags.

Tillagan gerir ráð fyrir göngu-og hjólreiðastíg í hrauninu sunnan Hraunhóla sem tengist stígakerfi við Fjarðarhraun. Sá stígur tengist göngu-og hjólreiðastíg sem tillaga að deiliskipulagi fólkvangsins Garðahraun efra gerir ráð fyrir frá núverandi stíg þvert yfir fólkvanginn. Tillagan gerir einnig ráð fyrir 2 m háum girðingum umhverfis gervigrasvöll í Bæjargarði.

Tillagan liggur frammi á bæjarskrifstofum Garðabæjar, Garðatorgi 7, frá  22.maí 2019 til og með 3. júlí 2019.  Hún er einnig aðgengileg á heimasíðu Garðabæjar www.gardabaer.is

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn athugasemdir við tillöguna á netfangið skipulag@gardabaer.is eða í þjónustuver Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ, og skulu þær vera skriflegar.  Frestur til þess að skila inn athugasemdum rennur út miðvikudaginn 3. júlí 2019. 

 

Arinbjörn Vilhjálmsson
skipulagsstjóri Garðabæjar