Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Breiðamýri – Grásteinsmýri – Deiliskipulagsbreyting

2.5.2024

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að breytingu deiliskipulags Breiðumýrar á Álftanesi í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. gr. 43. sömu laga.

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að breytingu deiliskipulags Breiðamýrar á Álftanesi í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. gr. 43. sömu laga.

Tillagan nær til fjölbýlishúsa við Grásteinsmýri og gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:

Hámarksfjöldi íbúða við Grásteinsmýri eykst um 18, úr 84 í 102.

Markmið breytingartillögunnar er að stuðla að meiri fjölbreytni á stærðum íbúða í Breiðamýri og auka framboð á minni íbúðum.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn rafrænar athugasemdir til og með 13. júní 2024 í gegnum vef skipulagsgáttar, www. skipulagsgatt.is (Mál: 514/2024).