Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.


Farsímasendir við Ásabraut-tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis)

13.6.2024

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að eftirfarandi deiliskipulagsáætlun í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. gr. 43. sömu laga.

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að eftirfarandi deiliskipulagsáætlun í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. gr. 43. sömu laga.

Tillagan gerir ráð fyrir staðsetningu a.m.k. 18 metra hás farsímasendis á opnu svæði austan Ásabrautar við gatnamót að Breiðási og Stórási .

Markmið tillögunnar er að bæta skilyrði farsímasambands í austurhluta Ásahverfis.

 

 

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn rafrænar ábendingar til og með 29. júlí 2024 í gegnum vef skipulagsgáttar, www. skipulagsgatt.is eða á netfangið skipulag@gardabaer.is.