Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.


Flóttamannavegur gatnamót - Ýmsar breytingar

27.3.2025

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með neðangreindar tillögur að breytingu deiliskipulags í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með neðangreindar tillögur að breytingu deiliskipulags í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Deiliskipulagsbreyting útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum.
Tillagan gerir ráð fyrir breyttri legu og gatnamótum Flóttamannavegar og aðkomuvegar að golfvallarsvæði (málsnr. 375/2025).

Deiliskipulagsbreyting Urriðaholts austurhluta.
Tillagan gerir ráð fyrir breytingum á útfærslu Flóttamannavegar og gatnamóta við Urriðaholtsstræti, Holtsveg og aðkomuveg að golfvallarsvæði (málsnr. 376/2025).

Deiliskipulagsbreyting Urriðaholts norðurhluta 4. áfanga.
Tillagan gerir ráð fyrir breytingum á útfærslu Flóttamannavegar og gatnamóta við Urriðaholtsstræti, Holtsveg og aðkomuveg að golfvallarsvæði (málsnr. 386/2025).


Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn rafrænar ábendingar til og með 8. maí 2025 í gegnum vef skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is.