Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Garðahraun efra

30.4.2019

Tillaga að  deiliskipulagi fólkvangs. Forkynning og íbúafundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar auglýsir hér með forkynningu á eftirfarandi  deiliskipulasáætlun í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

Garðahraun efra. Tillaga að deiliskipulagi fólkvangs.

Glærukynning frá kynningarfundi 9. maí.

Tillagan nær til friðaðs svæðis í Garðahrauni milli íbúðarbyggðar á Flötum og athafnasvæðis í Molduhrauni, frá Bæjargarði að Reykjanesbraut. Gert verður ráð fyrir göngu og hjólreiðastígum.

Tillögurnar eru aðgengilegar á heimasíðu Garðabæjar www.gardabaer.is og í þjónustuveri.

Almennur kynningarfundur vegna ofangreindra tillagna verður haldinn í Flataskóla mánudaginn 6. maí og hefst hann klukkan 17:00.

Ábendingum vegna tillagnanna skal skila í þjónustuver eða senda þær með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir 9. maí 2019.

Að lokinni forkynningu verður unnið úr ábendingum en þeim verður ekki svarað með formlegum hætti.

Í kjölfar úrvinnslu verður tillögum vísað til endanlegrar auglýsingar. Þá verður gefinn kostur á að senda inn athugasemdir og þeim verður svarað með formlegum hætti.