Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Garðahraun efra, fólkvangur

Skipulagslýsing

16.4.2019

Skipulagslýsing

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir skipulagslýsingu vegna deiliskipulagsáætlunar fyrir Garðahraun efra, fólkvangur, í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 

Markmiðið með gerð deiliskipulagsins er að það verði í samræmi við friðlýsingarskilmála sem í gildi er fyrir svæðið sem fólkvangur.

Lýsingin liggur frammi á bæjarskrifstofu Garðabæjar, Garðatorgi 7, frá 16. apríl til og með 28. apríl 2019. Einnig er hún aðgengileg á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn ábendingar. 

Skila skal inn ábendingum á bæjarskrifstofu Garðabæjar eða á netfangið skipulag@gardabaer.is og skulu þær vera skriflegar og undirritaðar.

Frestur til að skila inn ábendingum rennur út sunnudaginn 28. apríl 2019.

Arinbjörn Vilhjálmsson
skipulagsstjóri