Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.
Garðprýði 1 (Hraungarðar) - Deiliskipulagsbreyting
Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að eftirfarandi deiliskipulagsáætlun í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að eftirfarandi deiliskipulagsáætlun í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Garðprýði 1 – Garðahraun deiliskipulagsbreyting
Tillagan gerir ráð fyrir því að lóðin Garðprýði 1 (Hraungarðar) skiptist í tvær lóðir. Gert er ráð fyrir nýjum byggingarreit í suðausturhorni núverandi lóðar og að aðkoma að nýrri byggingu verði innan lóðar Garðprýðis 1. Byggingarreiturinn fyrir Garðprýði 1, sem nú er á stórum hluta lóðarinnar minnkar og takmarkast við núverandi hús.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn rafrænar athugasemdir til og með 8. ágúst 2024 í gegnum vef skipulagsgáttar, www. skipulagsgatt.is eða á netfangið skipulagardabaer.is.