Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Hnoðraholt norður - Deiliskipulagsbreyting

22.3.2023

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.

Tillagan gerir ráð fyrir viðbótarhæðum fjölbýlishúsa sem verða inndregnar og fjölgun bílastæða innan lóða til að mæta mögulegri fjölgun íbúða vegna aukins byggingarmagns. Tillagan gerir einnig ráð fyrir því að fjórum tveggja hæða einbýlishúsalóðum verði breytt í rað- og parhúsalóðir. Samkvæmt tillögunni getur íbúðareiningum fjölgað um 32.

Tillagan er aðgengileg á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is og í þjónustuveri. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn skriflegar athugasemdir til og með 3. maí 2023, annað hvort á netfangið skipulag@gardabaer.is eða á bæjarskrifstofur Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.