Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Deiliskipulag Hnoðraholts norður, leikskóli og búsetukjarni

8.12.2021

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður

Hnoðraholt norður, leikskóli og búsetukjarni, tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður.

Í samræmi við 1.mgr.43.gr. og 1.mgr.41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 auglýsir Garðabær hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður.

Tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir stækkun skipulagssvæðis til suðurs austan Vetrarbrautar á háholti Hnoðraholts. Gert er ráð fyrir 7.292 m2 lóð fyrir leikskóla sem nefnist Haustbraut 1 og 3.143 m2 íbúðarlóð ætlaðri búsetukjarna fyrir fatlaða nefnd Haustbraut 2. Tillagan er í samræmi við Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030 m.s.br. Þar sem að breytingartillagan er að fullu í samræmi við aðalskipulag fellur skipulagsnefnd frá gerð lýsingar í samræmi við 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga og frá forkynningu í samræmi við 3. mgr. sömu greinar.

Tillögurnar er aðgengilegar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is, og í þjónustuveri.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn skriflegar athugasemdir til og með 19.01.2022 annað hvort á netfangið skipulag@gardabaer.is eða á bæjarskrifstofu Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.