Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Kauptún 4 (IKEA)

31.1.2022

Breyting á deiliskipulagi Kauptúns. 

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að breytingu deiliskipulags Kauptúns í samræmi við 1. mgr. 31 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 1 mgr. 41. gr. og 1. mgr 43. gr sömu laga. 

Tillagan gerir ráð fyrir því að verslunarlóðin Kauptún 4 stækki til vesturs um 16.866 m2, er fyrir breytingu
56.403 m2 en verður 73.269 m2 eftir breytingu. Hámarksbyggingarmagn á lóð eykst úr 22.500 í 
35.000 m2. Fjöldi bílastæða eykst í samræmi við bílastæðakröfu deiliskipulagsins sem 1 stæði fyrir
hverja 30 m2. Heimilt verður að áfangaskipta uppbyggingu bílastæða í samræmi við bílastæðaþörf.
Tillagan er í samræmi við Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030.

Tillögurnar eru aðgengilegar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is og í þjónustuveri. Þeir sem telja sig
eiga hagsmuni að gæta er gefinn kostur á að senda inn skriflegar athugasemdir til og með 14. mars 2022, annað hvort á netfangið skipulag@gardabaer.is  eða á bæjarskrifstofur Garðabæjar, Garðatorgi 7,
210 Garðabæ.