Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Keldugata 2 og 4

25.11.2020

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts

Garðabær auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vesturhluta Urriðaholts í samræmi við 1. mgr. 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 31. gr. sömu laga.

Tillagan gerir ráð fyrir því að lóðirnar Keldugata 2 og Keldugata 4 sameinist í eina lóð, Keldugötu 2. Byggingarreitur lóðarinnar Keldugata 4 fellur niður og nýr byggingarreitur verður á austurhluta nýrrar lóðar. Heildarfjöldi íbúða verður sá sami eða 9 íbúðir en nú í einu húsi. Í samræmi við breytinguna breytast númer á öðrum lóðum ofan götu (slétt númer).

Tillagan er aðgengileg á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is, og í þjónustuveri.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn skriflegar athugasemdir til og með 11.01.2021 annað hvort á netfangið skipulag@gardaber.is eða á bæjarskrifstofu Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.