Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Kjóavellir, hesthúsabyggð og keppnisleikvangur – Deiliskipulagsbreyting

25.1.2024

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að breytingu deiliskipulags Kjóavalla í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.

Tillagan gerir ráð fyrir breikkun byggingarreita og breytingu á ákvæðum um þakform í Andvarahverfi til samræmis við ríkjandi þakform í byggðinni.

- Kjóavellir - Deiliskipulagsbreyting

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn rafrænar athugasemdir til og með 8. mars 2024 í gegnum vef skipulagsgáttar www.skipulagsgatt.is eða á netfangið skipulag@gardabaer.is.