Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Maríugata 1-3

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts 1. áfangi

10.9.2019

Maríugata 1-3. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts 1. áfangi

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögur að breytingum deiliskipulaga í samræmi við 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 1 mgr. 43. gr. sömu laga.

Maríugata 1-3, tillaga að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts 1. áfangi.

Tillagan gerir ráð fyrir að íbúðum á lóð er að fjölgað um 8 íbúðir, úr 20 íbúðum í 24 íbúðir í hvoru húsi, samtals úr 40 íbúðum í 48 íbúðir á lóð.  

Deiliskipulagsuppdráttur

Tillögurnar eru aðgengilegar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is og í þjónustuveri. Þeir sem telja sig eiga hagsmuni að gæta er gefinn kostur á að senda inn skirflegar athugasemdir til og með 22. október 2019, annað hvort á netfangið skipulag@gardabaer.is eða á bæjarskrifstofur Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.

Arinbjörn Vilhjálmsson
skipulagsstjóri Garðabæjar