Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Maríugata 9-11, tillaga að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts

15.6.2021

Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Garðabær auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi Austurhluta Urriðaholts í samræmi við
1. mgr. 43. gr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 

Tillagan gerir ráð fyrir því að fjölgað verði um fjórar íbúðir stærri en 90 m2 og fjórar íbúðir minni en 90 m2. Bílastæðum á lóð fjölgar til samræmis við fjölgun íbúða. 

Tillagan er aðgengileg á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is, og í þjónustuveri Garðabæjar,
Garðatorgi 7. 

Þeir sem telja sig eiga hagsmuni að gæta er gefinn kostur á að senda inn skriflegar athugasemdir.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 27. júlí 2021. Skila skal athugasemdum á
bæjarskrifstofu Garðabæjar eða á netfangið  skipulag@gardabaer.is