Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Mosagata deiliskipulagsbreyting

8.12.2021

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluta

Mosagata, tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluta

Í samræmi við 1.mgr.43.gr. og 1.mgr.41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 auglýsir Garðabær hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluta.

Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluta sem gerir ráð fyrir að göngustígur frá Mosagötu að göngustíg á milli lóða við Mosagötu og Holtsveg falli út ásamt leiksvæði. Um leið breytast mörk lóðarinnar Mosagata 4 sem stækkar til norðvestur.

Tillögurnar er aðgengilegar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is, og í þjónustuveri.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn skriflegar athugasemdir til og með 19.01.2022 annað hvort á netfangið skipulag@gardabaer.is eða á bæjarskrifstofu Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.