Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Þorraholt. Deiliskipulag Hnoðraholts norður

8.12.2021

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður

Þorraholt, tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður.

Í samræmi við 1.mgr.43.gr. og 1.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr.123/2010 auglýsir Garðabær hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður sem nær til íbúðarbyggðar í Þorraholti sem mun rísa norðan við núverandi byggð í Hnoðraholti.

Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á byggingarreitum sem hafa það að markmiði að bæta búsetugæði íbúðanna. Byggingarmagn breytist ekki en fjöldi íbúða getur orðið á bilinu 180-220 í stað 200 áður. Fallið er frá verkefnislýsingu og forkynningu í samræmi við 40.gr. skipulagslaga nr.123/2010 þar sem allar forsendur eru til staðar í aðalskipulagi sem er sett fram sem rammahluti.

Tillögurnar er aðgengilegar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is, og í þjónustuveri.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn skriflegar athugasemdir til og með 19.01.2022 annað hvort á netfangið skipulag@gardabaer.is eða á bæjarskrifstofu Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.