Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.


Tillaga að breytingu Hnoðraholts norður, austan Vetrarbrautar (Vorbraut)

27.7.2023

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður austan Vetrarbrautar (Vorbraut) í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr.

Tillagan gerir ráð fyrir að fjölbýlishús sunnan Vorbrautar verði 4 hæðir með efstu hæð inndregna sbr. tillögu að aðalskipulagsbreytingu sem auglýst er samhliða.

Einnig er gert ráð fyrir að bílageymslur séu heimilaðar undir fjölbýlishúsum.

Hámarksfjöldi íbúða í fjölbýlishúsunum sunnan Vorbrautar (sléttar tölur) hækkar úr 9 í 12 í hverju húsi.

Tillagan er aðgengileg á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is og í þjónustuveri. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn skriflegar athugasemdir til og með 11. september 2023, annað hvort á netfangið skipulag@gardabaer.is eða á bæjarskrifstofu Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.