Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Urriðaholt, mörk deiliskipulagssvæða. deiliskipulagsbreyting

8.12.2021

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts norðurhluta 2 og norðurhluta 3

Urriðaholt, tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 2 og norðurhluta 3

Í samræmi við 1.mgr.43.gr. og 1.mgr.41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 auglýsir Garðabær hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts norðurhluta 2 og norðurhluta 3

Í deiliskipulagsbreytingunni felst að afmörkun deiliskipulagssvæðis breytist lítillega. Deiliskipulagsmörk milli 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts samræmd. Bráðabirgðaútfærsla með snúningshaus í Dyngjugötu og Brekkugötu fellur niður. Brekkugata og Dyngjugata tengjast Urriðaholtsstræti með deiliskipulagi Urriðaholts 3. áfanga. Breyting er gerð á fyrirkomulagi bílastæða og gangstéttar vegna samræmingar milli 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts. Fyrirhuguð gatnatenging á Brekkugötu frá 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts færist til.

Tillögurnar er aðgengilegar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is, og í þjónustuveri.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn skriflegar athugasemdir til og með 19.01.2022 annað hvort á netfangið skipulag@gardabaer.is eða á bæjarskrifstofu Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.