Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Vinastræti 1-3 - Urriðaholt vesturhluti - Deiliskipulagsbreyting

12.12.2023

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vinastrætis 1-3 - Urriðaholt vesturhluti í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:

  • Form byggingarreits breytist.
  • Afmörkuð er lóð ásamt byggingarreit fyrir spennistöð.



Tillögurnar eru aðgengilegar á vef skipulagsgáttar Skipulagsstofnunar.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn rafrænar athugasemdir til og með 24. janúar 2024 í gegnum vef skipulagsgáttar eða á netfangið skipulag@gardabaer.is.