Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.


Vorbraut 21-25, 27-35 og 49-55 - Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður

13.6.2024

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að eftirfarandi deiliskipulagsáætlun í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. gr. 43. sömu laga.

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að eftirfarandi deiliskipulagsáætlun í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. gr. 43. sömu laga.

Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúðareininga í raðhúslengjunum Vorbraut 21-25 fjölgi úr 3 í 4, Vorbraut 27-35 úr 5 í 6 og Vorbraut 49-55 úr 4 í 5.

Alls verður fjölgun um 3 íbúðareiningar. Fjöldi íbúðareininga er í samræmi við viðmiðunarfjölda íbúða fyrir Hnoðraholt suður sem fram kemur í aðalskipulagi.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn rafrænar ábendingar til og með 29. júlí 2024 í gegnum vef skipulagsgáttar, www. skipulagsgatt.is (mál: 766/2024) eða á netfangið skipulag@gardabaer.is.