Vörðugata 2
24.5.2022
Vörðugata 2, tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 4
Í samræmi við 1.mgr.43.gr. og 1.mgr.41.gr. skipulagslaga nr.
123/2010 auglýsir Garðabær hér með eftirfarandi breytingartillögu á
deiliskipulagsáætlunum.
Vörðugata
2, tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 4.
Tillagan
gerir ráð fyrir að byggingarreitur bílgeymslu stækki og bílastæðum fjölgi en
gestastæðum á lóð fækki. Kjallari bætist við undir húsið. Byggingarmagn
ofanjarðar helst óbreytt.
Vörðugata 2 - deiliskipulagsbreyting
Tillagan er aðgengileg hér á
vef Garðabæjar, www.gardabaer.is, og í
þjónustuveri.
Þeir sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn skriflegar athugasemdir til og
með 05.07.2022 annað hvort á netfangið skipulag@gardabaer.is
eða á bæjarskrifstofu Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.