Matjurtagarðar
Garðbæingum gefst kostur á að leigja matjurtakassa til ræktunar matjurta á fjórum stöðum í sumar. Þeir eru staðsettir í Hæðahverfi, á Álftanesi og á tveimur stöðum í Urriðaholti.
- Leigutími er 10. maí - 15. október
- Matjurtakassarnir sem eru í boði eru 2m x 4m eða 8m2 að stærð og eru merktir með númerum.
- Vatn til vökvunar er á öllum stöðunum.
- Garðáhöld, plöntur og útsæði fylgja ekki með kössunum
- Leiguverð sumarið 2025 er 5.500 kr.
Umsókn um leigu á matjurtakössum - smelltu hér.
Umsókn um matjurtakassa
Hægt er að sækja um matjurtakassa með því að smella á hlekk hér.
Smellt er á þann matjurtakassa á myndinni sem óskað er eftir og um leið og hann hefur verið valinn er farið í gegnum greiðsluferli og garðurinn merktur sem seldur.
Leigutímabil gróðurkassanna er frá 10. maí - 15. október. Að leigutíma loknum þarf að vera búið að taka upp allar matjurtir úr matjurtakössunum (og skila þeim tómum).
Athugið að hver einstaklingur getur aðeins leigt einn matjurtakassa.
Hæðahverfi
Í Hæðahverfi er 21 matjurtakassar í boði til ræktunar. Aðkoma að svæðinu er sunnan leikskólans Hæðarbóls.
Sjá staðsetningu á kortavef Garðabæjar, og einnig hér á mynd.
Álftanes

Á Álftanesi eru 10 matjurtakassar við hliðina á gervigrasvellinum og aðkoma að þeim er frá Breiðamýri.
Sjá staðsetningu á kortavef Garðabæjar og einnig hér á mynd.
Urriðaholt - Kauptún
Við Kauptún eru 10 matjurtakassar. Aðkoma að þeim er frá bílastæðinu í Kauptúni þaðan sem göngustígur er að kössunum.
Staðsetning sýnd á kortavef Garðabæjar, sjá einnig mynd hér fyrir neðan.
Urriðaholt - neðan Dýjagötu
Matjurtagarðarnir neðan Dýjagötu eru 28 talsins. Margir göngustígar liggja að kössunum en þeir eru staðsettir fyrir neðan botnlanga Dýjagötu og Kinnargötu. Staðsetning sýnd á kortavef Garðabæjar, sjá einnig mynd hér fyrir neðan.
Skólagarðar í Silfurtúni
Skólagarðar eru í Silfurtúni og er aðkoma að þeim við leikskólann Bæjarból. Skólagarðarnir eru fyrir börn á aldrinum 6 - 13 ára. Sjá nánari upplýsingar hér um skólagarðana.
Eldri borgurum býðst að leigja garð í skólagörðunum eftir 7. júní.
Nánari upplýsingar veitir:
Smári Guðmundsson, garðyrkjustjóri,
netfang: smarig@gardabaer.is