Ferlið við nýskráningu og viðhald úthlutana úr þróunarsjóði
Fyrst er farið á síðu viðkomandi skólastigs. Þar má svo fara með bendilinn yfir einhverja af núverandi færslum og velja að nýskrá efni:
Þá opnast hefðbundið skráningarviðmót:
Heiti verkefnis fer í Titil, nafn skólans og ártal innan sviga fer í Undirtitil (ártalið gleymdist í skjáskotunum).
Útdrátturinn er skilinn eftir tómur, en hægt er að afrita eldri skráningu inn í meginmálið og breyta því svo með ritlinum. Hlekkur í lokaskýrslu eða önnur pdf skjöl ættu að skila sér rétt við copy-paste.
Eftir vistun (og áður en grein er gefin út) er farið í „Breyta skráningu“ til að skrá viðeigandi tög.
Flipinn Tög býður upp á einfalda leitarvirkni til að velja viðeigandi tög. (Ef einhver tög vantar þarf að skrá þau sérstaklega í stjórnkerfinu.)
Eftir vistun ættu tögin að sjást og þá má velja að gefa greinina út.
Skráningar raðast sjálfkrafa í listanum þannig að nýjustu skráningar koma efst. Til að hafa áhrif á röðunina er hægt að fara í skráningu greina og velja þeim aðra dagsetningu (t.d. 1. janúar á viðeigandi ári).