Stafrænt skólastarf í Garðabæ

Stafrænt nám er lykilþáttur í framtíðarsýn Garðabæjar, þar sem lögð er áhersla á að búa nemendur undir stöðugar samfélags- og tæknibreytingar. Garðabær hefur sett fram skýra menntastefnu sem leggur grunn að farsælu og framsæknu skólastarfi þar sem tækni er nýtt á ábyrgan, öruggan og skapandi hátt. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðað nám og fjölbreytta kennsluhætti þar sem upplýsingatækni er nýtt til að efla færni nemenda til að takast á við framtíðaráskoranir. Einnig til að jafna tækifæri til náms, efla nýsköpun, skapandi hugsun og lausnamiðaða nálgun.

Námstæki

Aðgengi nemenda að námstækjum hefur aukist mikið og við árslok 2024 munu allir nemendur í 4.-10. bekk hafa aðgang að Chromebook tölvum til að nýta í námi sínu. Rekstur og stjórnun Chromebook tölvanna fer fram í Google Workspace for Education Plus umsjónarkerfinu og nemendur skrá sig inn með gerviauðkennum. Lokað er fyrir öll samskipti utan kerfisins.

Jafnframt er stefnt að því að tryggja hverjum nemanda í 1.-3. bekk iPad spjaldtölvu til afnota í námi sínu. Spjaldtölvunum er stýrt með miðlægu umsjónarkerfi Jamf, sem veitir kerfisstjórum möguleika á að setja takmarkanir á notkun. Upplýsingatæknideild Garðabæjar hefur lokað fyrir aðgang að App Store í námstækjum og dreifir smáforritum miðlægt. Nemendur skrá sig ekki inn í spjaldtölvurnar og eru þær allar læstar með aðgangskóða.

Hugbúnaður

Val á hugbúnaði/forritum sem nýtt eru í skólastarfi með börnum krefst vandlegrar skoðunar. Áður en hugbúnaður er tekinn í notkun fer fram ítarlegt greiningarferli sem felur meðal annars í sér áhættumat, gerð vinnslusamninga, vinnsluskrá og mat á áhrifum á persónuvernd. Val á hugbúnaði byggir jafnframt á aðalnámskrá, lögum um persónuvernd og reglum sveitarfélagsins, með það markmið að styðja við nám, sköpun, tjáningu og stafræna hæfni nemenda á öruggan og ábyrgan hátt.

Unnið er að innleiðingu á smáforriti sem tilheyrir Jamf-stýrikerfinu fyrir spjaldtölvur. Með því getur kennari stjórnað kennslustund meðal annars með því að takmarka aðgengi nemenda að ákveðnum smáforritum og vefsíðum.

Markvisst er unnið að því að lágmarka vinnslu persónuupplýsinga nemenda í þeim hugbúnaðarlausnum og námstækjum sem nýtt eru í skólastarfi í Garðabæ. Þeirri vinnu er stýrt miðlægt frá skrifstofu fræðslu- og frístundasviðs.

Andmælaréttur

Nemendur eða forráðafólk sem vilja andmæla notkun tiltekins hugbúnaðar geta sent andmæli til skólastjóra viðkomandi skóla. Öll andmæli eru skráð, metin og eftir atvikum boðið upp á aðrar lausnir fyrir nemendur sé talið tilefni til þess.

Einnig er hægt að hafa samband við persónuverndarfulltrúa Garðabæjar vegna fyrirspurna um vinnslu persónuupplýsinga. Fyrirspurnum má beina á netfangið personuvernd[hjá]gardabaer.is. Einnig er hægt að senda erindi til Persónuverndar.

Ábyrgð

Skólastjóri ber ábyrgð á notkun upplýsingatækni í sínum skóla og ber að fræða foreldra um samþykkta notkun hugbúnaðar/forrits.

Samþykktur hugbúnaður

Hér fyrir neðan er að finna upplýsingar um hugbúnað sem hefur fengið samþykki til notkunar í skóla- og frístundastarfi í Garðabæ. Allur hugbúnaður hefur verið metinn af sérfræðingum fræðslu- og frístundasviðs og þjónustu og þróunarsviðs út frá kennslufræði og öryggis- og persónuverndarsjónarmiðum. Smella þarf á plúsinn til að opna frekari upplýsingar um viðkomandi hugbúnað.

Áhættugreining

Áhættugreiningu fyrir hugbúnaðinn hér fyrir neðan er að finna á vefsíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Menntastefna garðabæjar 2022-2030

https://www.gardabaer.is/ibuar/skolar-og-daggaesla/menntastefna-gardabaejar-2022-2030/  

Hlekkir á tengt efni

Apple kjarnahugbúnaður iPad

Sjá nánar um Apple kjarnahugbúnað iPad

Apple School Manager - Stjórnkerfi sem heldur utan um smáforrit og hugbúnað keyptan í App Store. Kerfið er eingöngu aðgengilegt og notað af sérfræðingum á upplýsingatæknideild og á fræðslusviði Garðabæjar. 

Apple swift Playgrounds - Forritunarkennsla og þjálfun með skemmtilegum myndrænum þrautum og leikjum. Nemendur leysa þrautir með einföldum skipunum og þjálfa þannig rökhugsun, lausnamiðaða hugsun og skapandi vinnubrögð. 

GarageBand - Hljóðvinnsluforrit, hægt að skapa tónlist, prófa hljóðfæri, taka upp, klippa og vinna á skapandi hátt. Forritið er einfalt í notkun og styður við tónlistarnám, tjáningu og sköpun.   

iMovie - Kvikmyndagerð á einfaldan hátt. Með forritinu geta nemendur búið til stutt myndbönd með myndum, myndskeiðum, texta og hljóði.  

Keynote - Kynningar og glærur. Með forritinu er hægt að búa til kynningar með texta, myndum og einföldum hreyfimyndum til að sýna verkefni, segja frá hugmyndum eða vinna myndræna framsetningu á efni á skýran og skapandi hátt.  

Notes - Glósur og hugmyndir. Einfalt glósu forrit þar sem hægt er að skrifa niður hugmyndir, teikna, gera lista eða safnað upplýsingum. 

Numbers - Töflur, mynstur og gögn. Hægt að vinna með tölur, mynstur og einföld gögn á sjónrænan og skapandi hátt. Styður við stærðfræðilega hugsun, flokkun og samanburð og býður upp á skapandi nálgun á talnaefni.  

Pages - Ritun og textagerð. Hægt að vinna með texta á fjölbreyttan hátt, smásögur, ritgerðir stuttar eða langar. Styður við ritun, sköpun og framsetningu og býður upp á einföld sniðmát, myndir og leturgerðir til að gera texta aðgengilegan og skemmtilegan. 

Safari - Netvafri sem notaður er til að skoða vefsíður og afla upplýsinga á netinu. 

Voice memos - Hljóð og raddupptökur. Forritið nýtist til að æfa framsögn, segja sögur, taka upp hugmyndir eða vinna með hljóð á einfaldan og aðgengilegan hátt.     

Bebras áskorunin

Bebras er alþjóðleg áskorun sem miðar að því að auka áhuga á upplýsingatækni og efla tölvunarhugsun
(e. computational thinking). 

Sjá nánar um Bebras áskorunina

Til stendur að taka þátt í hinni alþjóðlegu Bebras áskorun sem miðar að því að auka áhuga á upplýsingatækni og efla tölvunarhugsun (e. computational thinking) meðal nemenda á öllum skólastigum. Fer hún fram á vefnum í nóvember ár hvert undir umsjón kennara. Áskorunin er hýst í Amsterdam hjá hollenska tölvufyrirtækinu Eljakim Information Technology bv sem er NEN7510:2017 og ISO27001:2013 vottað. Ský félag fyrir fólk og fyrirtæki í upplýsingatækni , er í forsvari fyrir áskorunina á Íslandi.

Bebras áskorunin er skemmtileg og áhugaverð leið til að kynnast og þjálfa tölvunarhugsun fyrir nemendur á aldrinum 6-18 ára. Þátttakendur fá krefjandi verkefni til að leysa og hafa til þess eina tilraun sem varir 45 mínútur. Viðfangsefnin eru aldursmiðuð og skiptast í 6 aldursflokka og styðja meðal annars við kennslu markmið aðalnámskrár grunnskóla.

Engar persónuupplýsingar verða skráðar um nemendur. Eftirfarandi upplýsingar verða skráðar í hugbúnaðinn:  

  • Gerviauðkenni. 
  • Bekkur.
  • Þyngdarstig - til að tryggja að nemandi fái viðfangsefni sem hæfa aldri hans og þroska.

Eftirfarandi upplýsingar verða skráðar um stjórnendur/kennara:

  • Nafn
  • Netfang - er geymt sem tengiliða upplýsingar fyrir skólann.
    Gögn um þátttakendur eru geymd í allt að 10 mánuði að þeim liðnum er öllum persónuupplýsingum um þátttakendur eytt. Gögn sem eru gefin út niður á skóla, skólaár og kyn eru gerð ópersónugreinanleg. Þátttakandi og/eða foreldrar/forsjáraðilar geta hvenær sem er óskað eftir að fá gögnin afhent og/eða að þeim verði eytt, jafnvel innan 10 mánaða. Senda þarf tölvupóst annað hvort á umsjónarkennara eða beint á netfangið sky[hjá]sky.is með slík erindi. Kennarar geta valið að taka ljósmyndir af þátttakendum og sent á Ský eftir þeim reglum sem gilda um myndatökur og myndbirtingar viðkomandi skóla. Myndirnar gætu verið notaðar í umfjöllun um áskorunina.

Tilgangur vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við Bebras áskorunina er að styðja við og efla kennslu í upplýsingatækni og þróa hæfni nemenda í upplýsingatækni, forritun og tölvunarhugsun (e. computational thinking) með markvissum hætti.

Verkefni áskoruninnar byggjast á notkun upplýsingatækni með tengingu inn á svið stærðfræðinnar og eru sérsniðin að aldri og getu nemenda. Þetta styrkir þverfaglega hugsun nemenda og hæfni þeirra til að tengja saman ólík viðfangsefni. Þrautirnar reyna á sköpunargáfu nemenda með því að ýta undir að þeir finni nýjar leiðir til að leysa verkefni með óhefðbundnum aðferðum.

Sveitarfélaginu er nauðsynlegt að vinna með tilgreindar persónuupplýsingar á grundvelli þess að vinnslan þyki nauðsynleg vegna verkefnis sem unnið er í þágu almannahagsmuna og við beitingu opinbers valds sem sveitarfélagið fer með, sbr. 5. tölul. 9. gr. laga nr. 90/2018 enda leiðir það af hlutverki grunnskóla samkvæmt lögum um grunnskóla nr. 91/2008.

Kennslufræðilegur rökstuðningur

Með þátttöku í Bebras áskoruninni læra nemendur að hugsa kerfisbundið, finna lausnir á flóknum vandamálum og nota rökræna hugsun sem er hluti af færni í upplýsingatækni og miðlalæsi. Bebras notar stafrænt og gagnvirkt námsefni sem eflir nemendur í að nýta tæknilausnir á fjölbreyttan hátt.

Í kafla 26 - Upplýsinga- og tæknimennt í aðalnámskrá grunnskóla segir m.a. „Megintilgangur kennslu í upplýsinga- og tæknimennt er að efla upplýsinga- og miðlalæsi nemenda og hjálpa þeim að öðlast almenna, góða tæknifærni og tæknilæsi. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi öðlast víðtæka hæfni á sviði upplýsinga- og miðlalæsis við lok grunnskóla. Þjálfa þarf hvern nemanda markvisst í upplýsinga- og miðlalæsi alla skólagönguna.“ (Aðalnámskrá grunnskóla, kafli 26.1 Upplýsinga- og tæknimennt).

Einnig er tilgangur vinnslunnar að styðja við þjálfun eftirfarandi hæfniviðmiða í upplýsinga- og tæknimennt sem og stærðfræði aðalnámskrár grunnskóla.

Að nemandi getur:

  • Nýtt rafrænt og gagnvirkt námsefni.
  • Nýtt rafrænt og gagnvirkt námsefni á fjölbreyttan hátt.
  • Notað hugbúnað/forrit við miðlun þekkingar á einfaldan hátt.
  • Notað myndmál, frásögn og texta jafnhliða táknmáli stærðfræðinnar og unnið með innbyrðis tengsl þeirra.
  • Sett sig inn í og tjáð sig, bæði munnlega og skriflega, um ólíkar leiðir við lausnir stærðfræðiverkefna.
  • Kannað, búið til og tjáð sig um reglur í talnamynstrum og öðrum mynstrum á fjölbreyttan hátt og spáð fyrir um framhald mynsturs, t.d. með því að nota líkön og hluti.

    Þátttaka í Bebras áskoruninni styður við alla ofangreinda þætti aðalnámskrár grunnskóla.

Sérfræðingar fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar hafa framkvæmt áhættugreiningu á Bebras áskoruninni. Greiningin leiddi í ljós að notkun er heimil með takmörkunum.

Um nemendur er eingöngu heimilt að skrá gerviauðkenni, bekk og þyngdarstig

Ekki er heimilt að skrá nafn eða kyn. Með því er vinnsla persónuupplýsinga nemenda lágmörkuð.

Smelltu hér til að skoða áhættugreiningu hugbúnaðarins á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Bee-Bot

Smáforrit er skemmtilegur þrautaleikur sem kennir nemendum grunnatriði forritunar þau þjálfast í röð aðgerða, stefnu, lausnaleit og rökhugsun. #forritun #yngsta_stig 

Sjá nánar um Bee-Bot 

Til stendur að taka í notkun smáforritið Bee-bot í skólastarfi í Garðabæ. Hugbúnaðurinn verður settur upp á iPad spjaldtölvur nemenda. 

Kennslufræðilegur rökstuðningur
Bee-bot styður við þjálfun forritunarhugsunar (e. programming mindset) á aðgengilegan og öruggan hátt fyrir yngstu nemendurna. Með því að raða skipunum, spá fyrir um niðurstöðu og prófa, æfa þau rökhugsun, lausnaleit og sjálfstæði. Nemendur geta unnið sjálfstætt eða í hópum við að leysa þrautirnar sem efla málþroska, stærðfræði og rýmislæsi. 

Smáforritið þarf ekki nettengingu til að virka og engin vinnsla persónugreinanlegra upplýsinga fer fram við notkun.

Smelltu hér til að skoða áhættugreiningu hugbúnaðarins á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga.


Blue-bot

Smáforrit fyrir iPad sem þjálfar forritun, rýmishugsun og lausnaleit. #forritun #yngsta_stig

Sjá nánar um Blue-bot

Til stendur að taka Blue-bot smáforritið í notkun í grunnskólum Garðabæjar. Smáforritið er hægt að nota á tvo vegu annars vegar án vélmennis og hins vegar með vélmenni.

  • Án vélmennis er hægt að forrita stafrænan Blut-bot á skjánum með því að raða saman skipunum og prófa leiðir á stafrænum borðum
  • Með vélmenni tengist smáforritið Blue-bot vélmenni í gegnum Bluetooth. Nemendur raða saman skipunum í appinu sem síðan keyrir vélmennið áfram á gólfinu.

Í báðum tilvikum geta nemendur valið á milli mismunandi bakgrunna (t.d. tölustafi, bókstafi, kort) eða hannað eigin bakgrunn til að tengja viðfangsefni við námsefni. Nemendur læra grunnatriði forritunar sem styður við tölvunarhugsun (e. computational thinking) og rökhugsun.

Book Creator iPad

Rafbókarforrit, hægt að búa til stafrænar bækur á skapandi hátt með texta, myndum, myndskeiðum og hljóði. 

Sjá nánar um Book Creator iPad

Til stendur að taka Book Creator iOS smáforritið í notkun í grunnskólum Garðabæjar. Eingöngu er leyfilegt að nota útgáfu smáforritsins sem kostar. Smáforritið verður sett upp á iPad námstæki nemenda. 

Book Creator er smáforrit sem nemendur nota á iPad í skólanum. Þar geta þau búið til sínar eigin bækur með texta, myndum, teikningum, hljóðupptökum og jafnvel myndskeiðum. Þannig læra þau að segja frá á skapandi hátt og nota mismunandi leiðir til að tjá sig.

Rafbækurnar sem nemendur búa til vistast bara á iPad-námstækinu og fara ekki út á netið. Það þýðir að engar vinnsla persónuupplýsinga fer fram við notkun. Allt efni er aðeins aðgengilegt innan skólans og undir leiðsögn kennara.

Markmiðið með notkun Book Creator er að efla læsi og tjáningu nemenda með fjölbreyttum miðlum. Börnin fá að þjálfa sköpunargleði, samvinnu og sjálfstæði, auk þess að læra að tengja saman texta, myndir og hljóð á markvissan hátt. Þannig styður forritið við lykilhæfni aðalnámskrár í læsi, skapandi hugsun og miðlalæsi, auk þess að auka áhuga nemenda á námi með lifandi og aðgengilegum verkefnum.

Smelltu hér til að skoða áhættugreiningu hugbúnaðarins á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Classroom Screen

Vefhugbúnaður sem birtir skipulagsverkfæri fyrir kennara á einum skjá til að styðja nemendur í að halda einbeitingu og skipulagi í kennslustund með fjölbreyttum sjónrænum verkfærum. Er sérstaklega hannaður til að bæta upplifun nemenda og tekur mið af mismunandi námsstílum. 

Innbyggt í hugbúnaðinn er tímastillir og skeiðklukka, umferðarljós, hávaðamælir, texta töflur, athugasemda kassi, teikniforrit (e. whiteboard), handahófskennd hópaskipting, spurninga kort og skjáskipting (e. multi-screen). #skipulag

Sjá nánar um Classroom Screen 

Til stendur að taka vef hugbúnaðinn Classroom Screen í notkun í grunnskólum Garðabæjar. Leyfilegt er að nota bæði ókeypis útgáfu hugbúnaðarins og áskriftarleið fyrir skóla/sveitarfélög. 

Notendur hugbúnaðarins eru eingöngu kennarar (ekki nemendur, skráðir notendur verða að hafa náð 18 ára aldri), kennarar geta skipulagt kennslustundir á "skjám" og vistað. Gögnin eru vistuð innan EES í vottuðum gagnaverum (ISO 27001, SOC 1, SOC 2, SOC 3, ISO 27017, ISO 27018) og notast er við dulkóðun gagna í flutningi og hvíld. 

Nafnalista hugbúnaðarins er leyfilegt að nota ef eingöngu eru nýtt fornöfn nemenda.  

Hávaðamælir hugbúnaðarins þarf aðgang að hljóðnema viðkomandi tölvu til að mæla hávaða stig í kennslustofunni, auðvelt er að opna og loka fyrir hljóðnemann í forritinu. Hægt er að stjórna aðgengi að hljóðnemanum í stillingum vefvafrans eða í tölvunni. Notanda er valfrjálst hvort hann veiti hugbúnaðinum aðgang að hljóðnemanum og hefur það ekki nein áhrif á virkni. Engin upptaka eða streymi á sér stað við notkun hávaðamælisins. 

Skjalamyndavél þarf aðgang að innbyggðri myndavél tölvunnar eða utanáliggjandi vefmyndavél til að varpa upp á skjáinn. Engin upptaka eða streymi á sér stað við notkun skjalamyndavélarinnar.   

Persónuupplýsingar

  • Um kennara eru skráðar eftirfarandi persónuupplýsingar: nafn og tölvupóstfang.
  • Um nemendur er hægt að skrá nafn og er sá möguleiki aðeins í boði þegar skipta á í hópa af handahófi.
    Leyfilegt er að: 
  • Nota hópaskiptinga-verkfærið ef eingöngu fornöfn nemenda eru sett inn. 
  • Skrá fornöfn nemenda í nafnalista (e. Name lists).   

Kennslufræðilegur rökstuðningur 

Hugbúnaðurinn styður við sveigjanlega kennslu, mismunandi námsstíla og mætir þörfum ólíkra nemenda, hjálpar nemendum að stjórna eigin tíma og einbeitingu. Með sjónrænum táknum, hljóðstýringu og skjáborði getur hugbúnaðurinn haft margvísleg jákvæð áhrif á kennslu og námsárangur nemenda. Sveigjanlegt viðmót hugbúnaðarins dregur úr truflun í kennslustund og styður kennara við að auðvelda skipti á milli verkefna, veita skýr fyrirmæli og sýnilega leiðsögn. 

Smelltu hér til að skoða áhættugreiningu hugbúnaðarins á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga

Dash og dot

Smáforrit til að stjórna Dash og Dot vélmönnum/þjörkum. Kennir grunnatriði forritunar og hreyfistýringu í gegnum skapandi leik og verkefni. #forritun

Sjá nánar um Dash og dot

Dash og Dot er gagnvirkt vélmenna-og forritunarsett sem styður skapandi vinnu nemenda, forritun og tæknilæsi á aðgengilegan hátt. Smáforritið sameinar vélbúnað og hugbúnað með fjölbreyttum forritunar verkefnum þar sem nemendur leysa áskoranir og sjá hugmyndir sínar verða að veruleika í hreyfanlegum og lifandi verkefnum.   


Dash hreyfist á gólfi, bregst við hljóði og hindrunum og framkvæmir forritaðar aðgerðir. Dot er kyrrstætt vélmenni með fjölbreytta skynjara sem bregst við hreyfingu, hljóði og ljósi. Þau geta unnið saman eða hvort í sínu lagi. 

Forritunin fer fram í einföldu og sjónrænu „drag-and-drop“ umhverfi, þar sem nemendur læra grunnatriði forritunar eins og röð skipana, lykkjur, skilyrði og orsakasamhengi á skýran og leikrænan hátt. 

Smelltu hér til að skoða áhættugreiningu hugbúnaðarins á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Deildu og drottnaðu

Vefsíða sem býður upp á þjálfun í deilingu. #yngsta_stig #stærðfræði #deiling

Sjá nánar um Deildu og drottnaðu 

Til stendur að taka stærðfræðivefinn Deildu og drottnaðu í notkun í skólastarfí Garðabæ. Vefurinn er gerður af fyrirtækinu Kunnátta. Við notkun vefsins er ekki unnið með neinar persónugreinanlegar upplýsingar.   

Evolytes

Sjá nánar um Evolytes

Fjármálaleikarnir

Fjármálaleikarnir er stafræn keppni í fjármálalæsi fyrir grunnskólanemendur. Keppnin veitir nemendum tækifæri til að fræðast um fjármál á skemmtilegan hátt og prófa þekkingu sína með því að leysa fjölbreytt verkefni. #fjármálalæsi

Sjá nánar um Fjármálaleikana

Til stendur að taka þátt í Fjármálaleikunum. Veflausnin hefur verið áhættumetin af sérfræðingum Garðabæjar með hliðsjón af persónuverndarlögum og upplýsingaöryggi. Gögnin eru vistuð í gagnaverum AWS (e. Amazon Web Services) í Dublin, Írlandi, sem fellur undir evrópska persónuverndarlöggjöf (GDPR). Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) er ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga í keppninni og hafa þau gert vinnslusamning við gagnaverið. Persónugreinanlegum upplýsingum er handvirkt eytt 6 mánuðum eftir að keppni lýkur. 

Hverjir geta tekið þátt?

Nemendur í efstu bekkjum grunnskóla geta tekið þátt fyrir hönd síns skóla. Keppnin er á vegum SFF og Landsamtaka lífeyrissjóða. 

Hvernig virkar keppnin?

Nemendur skrá sig inn á vefsíðuna www.fjarmalaleikar.is.
Þau svara spurningum og leysa verkefni um fjármálalæsi.
Stig nemenda eru reiknuð saman og skólinn safnar heildarstigum. 
Skólinn með hæstu stigin vinnur og tveit nemendur þaðan fá að keppa í úrslitum Evrópukeppninnar í Brussel. 

 Hver þátttakandi skráir sig til leiks á vefslóðinni www.fjarmalaleikar.is. Við skráningu gefur þátttakandi upp nafn, aldur, netfang og heiti skóla og þar með er viðkomandi skóli orðinn þátttakandi í leiknum. Ekki þurfa allir nemendur í árgangi að skrá þátttöku til að viðkomandi skóli teljist með, en lágmarksfjöldi skráðra þátttakenda úr hverjum skóla er tíu. Árangur hvers skóla er reiknaður hlutfallslega miðað við fjölda þátttakenda og fjölda nemenda í árganginum. Niðurstöður verða eingöngu teknar saman hjá þeim nemendum sem klára að svara öllum spurningunum. Sérstakur hnappur er fyrir kennara sem vilja fylgjast með gangi leikanna - þeir skrá sig til leiks í  „Kennaraskólann“. Kennarinn þarf ekki að klára leik eða svara spurningum, frekar en hann vill. 

Myndatökur og myndbirtingar

Farið er eftir reglum Garðabæjar um myndatökur og myndbirtingar. Myndir eru aðeins birtar með samþykki nemenda og foreldra/forráðafólks. Myndirnar geta verið birta á samfélagsmiðlum SFF, Instagram, Facebook og TikTok. 

Nemendur, foreldrar/forráðafólk eða kennarar geta afturkallað samþykki eða óskað eftir eyðingu gagna með því að senda tölvupóst á fjarmalavit[hja]fjarmalavit.is. 

Ef þú hefur spurningar eða vilt frekari upplýsingar getur þú haft samband beint við skólann eða senda tölvupóst á fjarmalavit[hja]fjarmalavit.is.

Smelltu hér til að skoða áhættugreiningu hugbúnaðarins á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Graphogame

Kennsluhugbúnaður sem styður börn í lestrarnámi með þjálfun í að tengja hljóð við bókstafi. #læsi

Sjá nánar um Graphogame

Smelltu hér til að skoða áhættugreiningu hugbúnaðarins á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Krakkarúv

Krakkarúv er safn af íslensku barnaefni frá RÚV, bæði á vef og í smáforriti. Þar má finna fréttir, þætti, leiki og hljóðefni sem eru sérstaklega gerð fyrir börn. 

Sjá nánar um Krakkarúv

Til stendur að taka í notkun smáforritið Krakkarúv í skólastarf í Garðabæ. Innskráning er ekki möguleg, engar auglýsingar eru í hugbúnaðinum og efnið er aðgengilegt öllum á Íslandi. Þetta er öruggt og skemmtilegur svæði fyrir börn til að horfa, hlusta og læra.  

Smelltu hér til að skoða áhættugreiningu hugbúnaðarins á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Lego Spike

#forritun

Sjá nánar um Lego Spike

Til stendur að taka í notkun smáforritið Lego Spike.

Smelltu hér til að skoða áhættugreiningu hugbúnaðarins á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Lego WeDo 2.0

KennsIuhugbúnaður sem styður við verklega STEM kennslu (e. sience, technology, engineering, mathematics) með áherslu á grunnatriði forritunar, verkfræði og hönnunar með skapandi verkefnum. Nemendur byggja þjarka (e. robots) og forrita þá til að leysa fjölbreyttar áskoranir. #forritun

Sjá nánar um Lego WeDo 2.0

Til stendur að taka í notkun hugbúnaðinn Lego WeDo 2.0 sem virkar á flestum stýrikerfum sem nýtt eru í dag. Hann virkar eingöngu með ákveðinni tegund Lego leikfanga. Ekki er hægt að skrá neinar  persónuupplýsingar um notendur. 

Valkvætt er hvort hugbúnaðurinn fái aðgang að hljóðnema, bluetooth, myndavél og myndaalbúmi. En til þess að forritið geti sent foritunarskipanir á þjarkinn þarf að vera opið fyrir Bluetooth. Auðvelt er að stjórna þessu aðgengi í stillingum viðkomandi námstækis.  

Lego hefur hætt þróun hugbúnaðarins og mun fjarlægja hann úr forritabúðum þann 31. júlí 2026. Sérfræðingar hafa metið áhættuna vegna þessa í lágmarki byggir það mat m.a. á því að hugbúnaðurinn er staðbundinn og krefst ekki nettengingar eða gagnaflutnings við vinnslu. 

Smelltu hér til að skoða áhættugreiningu hugbúnaðarins á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga

Lightbot: Code Hour

Smáforritið er skemmtilegur þrautaleikur sem snýst um að forrita lítið vélmenni til að kveikja ljós. Nemandi setur saman einfaldar forritunarskipanir, eins og að "fara áfram", "snúa", "kveikja ljós" og þjálfar þannig í raun kjarnaatriði forritunar sem eru röðun (e. sequencing), föll (e. procedures) og lykkjur (e. loops). Leikurinn er stuttur og hannaður fyrir stutta markvissa æfingu. #forritun

Sjá nánar um Lightbot: Code hour

Til stendur að taka í notkun smáforritið Lightbot: Code Hour sem hentar mjög vel til að kenna nemendum grunnhugsun forritunar, rökhugsun og lausnaleit, þrautsegju, sjálfstæði og tæknilæsi. Nemendur læra að brjóta viðfangsefni niður í lítil skref og prófa tilgátur. Þetta er góður undirbúningur fyrir svokallaða kubbaforritun. Aðal markmiðið er að nemendur læra forritun í gegnum leik.   

Smáforritið þarf ekki nettengingu til að virka og engin vinnsla persónugreinanlegra upplýsinga fer fram við notkun.  

Smelltu hér til að skoða áhættugreiningu hugbúnaðarins á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga. 

Lærum og leikum með hljóðin

Lærum og leikum með hljóðin er íslenskur kennsluhugbúnaður hannaður af talmeinafræðingum til að efla hljóðkerfisvitund og undirbúa lestrarnám. #læsi #hljóðkerfisvitund

Sjá nánar um Lærum og leikum með hljóðin 

Til stendur að taka smáforritið Lærum og leikum með hljóðin til notkunar í grunnskólum Garðabæjar. Það er íslenskt kennsluforrit hannað af talmeinafræðingum til að efla hljóðkerfisvitund og undirbúa lestrarnám. Forritið byggir á gagnreyndum aðferðum til að kenna hljóðkerfi íslenska tungumálsins á lifandi og skemmtilegan hátt. Það tekur mið af því í hvaða röð íslensk börn tileinka sér talhljóð í máltökunni og hvernig auðveldast er að kenna hljóðin.

Með gagnvirkum æfingum og leikjum geta notendur æft framburð og tengt hljóð við táknmyndir, sem styður við málþroska og lesskilning. Forritið býður upp á fjölbreytt verkefni þar sem hægt er að vinna með einstök hljóð, orð og setningar.

  • Nemandi notar forritið alltaf í umsjá kennara sem styður við þjálfunina.
  • Nemandi notar iPad eða Chromebook sem honum hefur verið úthlutað af skólanum og aðeins hann hefur afnot af.
  • Einnig er leyfilegt að vinna á spjaldtölvu og vefforrit í tölvu sem er í umsjá sérkennara.

    Sérfræðingar fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar hafa framkvæmt áhættugreiningu á smáforritinu og vefforritinu Lærum og leikum með hljóðin. Greiningin leiddi í ljós að notkun smáforritsins og vefforritsins er leyfð með takmörkunum.

Eftirfarandi upplýsingar verða skráðar um nemendur

  • Fornafn
  • Aldur (fæðingardagur, mánuður og ár)

    Persónuupplýsingarnar eru eingöngu vistaðar á iPad spjaldtölvu eða Chromebook fartölvu sem nemanda hefur verið úthlutað af skólanum og aðeins hann hefur afnot af. Ef unnið er í vefforriti í fartölvu kennara vistast upplýsingarnar staðbundið í vefvafrann. iPad spjaldtölvur, Chromebook fartölvur nemenda og fartölvur kennara í Garðabæ er aðgangsstýrt með aðgangskóða sem er sérstakur fyrir hvern notanda. Ekki er heimilt að nota innbyggða skráningu athugasemda í smáforritinu.
Ekki er um neina miðlæga skráningu eða stýringu að ræða.

Kennslufræðilegur rökstuðningur

Rannsóknir hafa sýnt að hljóðkerfisvitund er lykilþáttur í lestrarnámi og sterk forspá um lestrarárangur. Börn með góða hljóðkerfisvitund eiga auðveldara með að læra að lesa og skrifa, þar sem þau geta betur tengt saman hljóð og stafi (Lesvefurinn, 2024).

Með þjálfun hljóðkerfisvitundar, sem er undirstaða lestrarfærni, eflist hæfni nemanda við að lesa og skilja texta. Gagnvirkar æfingar forritsins hvetja nemanda í að nota eigið ímyndunarafl og beita þekkingu sinni á skapandi hátt sem ýtir undir hæfni þeirra í skapandi hugsun. 

Forritið býður upp á fjölbreyttar æfingar sem þjálfa þessa færni á markvissan hátt. Með notkun fá nemendur tækifæri til að æfa sig í að greina hljóð, tengja þau saman og mynda orð, sem styrkir lestrarfærni þeirra.

Forritið er hannað með það í huga að vera aðgengilegt og skemmtilegt fyrir börn, sem eykur áhuga þeirra á náminu og stuðlar að jákvæðri upplifun af lestrarnámi.

Forritið styður við hæfniviðmið og lykilhæfni aðalnámskrár grunnskóla með því að efla grunnfærni í lestri, stuðla að sjálfstæðu námi og hvetja til skapandi hugsunar.

Smelltu hér til að skoða áhættugreiningu hugbúnaðarins á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Orðagull

Er einfalt og skemmtilegt íslenskt smáforrit sem styður við málþroska með þjálfun í læsi, orðaforða og tjáningu með mynd-, leik- og hljóðrænum verkefnum. Forritið byggir á fjölbreyttum gagnvirkum æfingum þar sem notendur geta hlustað, lesið, sagt frá og tengt orð við merkingu þeirra. Æfingarnar stuðla að bættum málþroska, orðaforða og læsi í víðum skilningi. 

Sjá nánar um Orðagull

Orðagull leggur áherslu á þjálfun málskilnings og máltjáningu með því að auka orðaforða, skilning og tjáningu með samspili mynda, hljóða og orða. Fjölbreyttar leiðir eru nýttar til að tengja tákn, hljóð og  merkingu. 

Orðagull hjálpar börnum að auka orðaforða, skilja og nota tungumálið betur, styrkja frásögn og lesskilning þeirra. Það hentar bæði börnum til að styrkja íslenskan málþroska almennt og til að læra íslensku sem annað mál. Þannig styður þjálfun í forritinu við markmið aðalnámskrár leikskóla um læsi, tjáningu og samskipti.   

Aðeins verður notast við gælunafn barns eða dulnefni við skráningu í forritið þar af leiðandi fer engin vinnsla persónugreinanlegra upplýsinga fram þegar unnið er í forritinu.  

Osmo

Osmo Educational System er samansafn fjölda smáforrita sem nota sérstakan búnað fyrir iPad spjaldtölvur. Þetta gerir nemendum kleift að vinna að þjálfunarverkefnum sem byggja á leikjamiðaðri nálgun náms og tengja saman verklega og stafræna vinnu.  

Sjá nánar um Osmo

Smáforritin sameina virkni, leik og stafræna tækni í kennslu. Þau eru gagnvirkir námsleikir með hljóði og myndum sem kalla á virkna þátttöku nemenda. Unnið er bæði með skjáinn og áþreifanlegan búnað eins og kubba, stafi eða teikningar. 

Með Osmo vinna nemendur að fjölbreyttum verkefnum sem snúa meðal annars að stærðfræði, forritun og rökfærslu með lausnamiðaðri nálgun. Verkefnin eru sett fram á leik- og sjónrænan hátt og henta vel til að virkja nemendur með ólíkan bakgrunn og mismunandi þarfir. 

Áhersla er á virkni og þátttöku, samhæfingu hugar og handar, rökhugsun, sköpun og lausnaleit ásamt einstaklingsmiðaðri nálgun í námi. 

Smáforritin henta sérstaklega vel í leikskóla og á yngsta stigi grunnskóla, í sérkennslu, stöðvavinnu, hópavinnu og einstaklingsverkefnum.   

Smelltu hér til að skoða áhættugreiningu hugbúnaðarins á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Puppet Pals 2

Leikbrúðugerðarforrit, hægt að skapa og leika í eigin sögum með myndrænum karakterum og hljóði.

Sjá nánar um Puppet Pals 2

Smáforrit fyrir iPad til að gera stuttmyndir og leikþætti með stafrænum leikbrúðum með því að velja persónur og bakgrunna og hreyfa þær á skjánum. Skjárinn er tekinn upp sem og raddsetning nemenda. Útkoman verður líflegt myndband sem hægt er að vista á námstækinu sem nemendur hafa afnot af. 

Hvorki þarf innskráningu né skráningar á persónuupplýsingum við notkun Puppet Pals 2. En hafa ber í huga að þegar nemendur taka upp eigin raddir telst það til vinnslu persónuupplýsinga. Þær er eingöngu hægt að vista á námstækinu sjálfu. Í slíkum tilvikum þarf að taka mið af reglum um mynda- og hljóðupptökur í leik- og grunnskólum og tónlistaskóla í Garðabæ. 

Nemendur fá tækifæri til að efla skapandi hugsun, ímyndunarafl og tjáningu með því að semja sögur og vinna með leikræna framsetningu. Einnig þjálfast þau í málnotkun og framsögn sem falla undir hæfniviðmið íslenskukennslu aðalnámskrár, að nemendur geti miðlað hugmydum sínum bæði í munnlegu og stafrænu formi. Vinna í forritinu eflir félagsfærni þar sem nemendur vinna saman að leikþáttum, skrifa handrit eða sögur og taka sameiginlegar ákvarðanir. Einnig fellur vinna í forritinu vel að eftirfarandi lykilhæfni aðalnámskrár grunnskóla, tjáning og miðlun, skapandi og gagnrýnin hugsun, sjálfstæði og samvinna, nýting miðla og upplýsinga.    

Á sama tíma er forritið gott dæmi um skapandi notkun upplýsingatækni í skólastarfi. Það styrkir miðlalæsi og eykur skilning nemenda á því hvernig stafræn verkfæri geta verið nýtt í sköpun. 

Smelltu hér til að skoða áhættugreiningu hugbúnaðarins á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Read aloud: a text to speech voice reader 

Read Aloud er talgervill sem styður við 40+ tungumál og les upphátt texta á fjölbreyttu formi (HTML, PDF, Docs, Word o.fl.) í vefvafra.

Sjá nánar um Read aloud: a text to speech voice reader 

Fræðsla til foreldra/forráðafólks

Smelltu hér til að skoða áhættugreiningu hugbúnaðarins á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga.

RÚV 

RÚV veitir aðgang að fjölbreyttu íslensku efni á einum stað, í beinni útsendingu og upptökum bæði á vef og í smáforriti. Þar er að finna fréttir, fræðslu- og menningarefni, sjónvarpsþætti, útvarpsdagskrá og sérstakt barnaefni á KrakkaRúv. Efnið er án auglýsinga og ætlað öllum aldurshópum.  

Sjá nánar um RÚV

Til stendur að taka í notkun smáforritið RÚV í skólastarf í Garðabæ. Í skólastarfi má nota smáforritið án innskráningar. Smáforritið eykur fjölbreytni í kennslu þar sem kennarar geta byggt verkefni á efni sem tengist samfélagsfræði, tungumálanámi, listgreinum og upplýsingatækni.

Smelltu hér til að skoða áhættugreiningu hugbúnaðarins á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Sensory splatter

Einfalt og aðgengilegt smáforrit sem er notað í leikskólastarfi til að styðja við skynörvun og frjálsan leik. Forritið byggir á sjónrænum og hljóðrænum áreitum sem breytast og birtast við snertingu á skjánum. Með einfaldri snertingu verða breytingar á litum, formum og hljóði sem hjálpar til við að efla athygli og skilning á orsök og afleiðingu. 

Sjá nánar um Sensory splatter

Forritið er án texta, verkefna eða flókinna leiðbeininga og hentar því vel í rólegum og fyrirsjáanlegum aðstæðum. Notkun þess fer alltaf fram undir handleiðslu starfsfólks og í samræmi við faglegt mat. Það safnar engum persónuupplýsingum, krefst ekki innskráningar og getur verið notað án nettengingar. 

Snap! - vefforritun

Er kubbaforritunarmál sem hentar bæði byrjendum og þeim sem eru lengra komnir. Hugbúnaðurinn er hannaður af Berkeley háskóla í USA.  https://snap.berkeley.edu/  #forritun #miðstig

Sjá nánar um Snap! - vefforritun

Hugbúnaðurinn er þannig að notendur draga til og tengja saman kubba sem eru með fyrirfram skilgreindum aðgerðum. Eingöngu er leyfilegt að nota hugbúnaðinn án innskráningar. Þá er smellt á hnappinn "Run Snap!". Einnig er hægt að vinna í forritinu án nettengingar.  

Sphero Edu

Forrit til að stjórna og forrita Sphero vélmenni/þjarka með bæði blokkaforritun og textaforritun. Kennir nemendum grunnatriði í forritun á skemmtilegan og skapandi hátt. #forritun #stærðfræði #miðstig #unglingastig

Sjá nánar um Sphero Edu

Til stendur að taka smáforritið Sphero Edu í notkun í skólastarf í Garðabæ. Forritið er notað í tengslum við forritanlega Sphero vélmenni og nemendur læra grunnhugtök forritunar á skapandi og skemmtilegan hátt. Nemendur stjórna hreyfingu, birtu og hljóðum vélmennanna með mismunandi aðgerðum. 

Smáforritið verður sett upp á iPad námstæki sem nemendur hafa til afnota. Ekki er unnið með persónugreinanlegar upplýsingar. 

Nemendur þjálfa rökhugsun með því að forrita vélmenni til að leysa fjölbreytt verkefni sem hægt er að tengja þvert á námsgreinar sérstaklega stærðfræði, eðlisfræði og upplýsingatækni. Viðfangsefnin geta meðal annars verið hraði, horn og fjarlægðir.  

Smelltu hér til að skoða áhættugreiningu hugbúnaðarins á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Spritebox

Smáforrit sem sameinar skemmtilegan landkönnunarleik og fyrstu skrefin í forritun. Nemendur stýra litlu hetjunni Sprite um fjölbreytt landslag þar sem þau þurfa að hoppa, klifra og leysa þrautir. Leikurinn þróast jafnt og þétt yfir í kóðun því lengra sem nemendur komast í leiknum. 
#forritun #yngsta_stig #ipad

Sjá nánar um Spritebox

Til stendur að taka smáforritið Spritebox: Code Hour í notkun í skólastarf í Garðabæ. Forritið verður sett upp á iPad spjaldtölvur nemenda og er það hannað með mað það markmið að gera fyrstu kynni nemenda af forritun aðgengilega og skemmtilega. 

Nemendur byrja á einföldum æfingum í grænu landslagi en vinna sig áfram í snjó, eyðimörk og neðanjarðarheim þar sem verkefnin krefjast meira hugmyndaauðgi og nákvæmari lausna. Þannig byggir Spritebox upp færni í forritun á svipaðan hátt og í stærðfræði eða lestur. Með leiknum læra börn forritun á aðgengilegan hátt og eru hvött til að hugsa skipulega og skapa eigin lausnir.  

Smáforritið þarf ekki nettengingu til að virka og engin vinnsla persónugreinanlegra upplýsinga fer fram við notkun.

Stop Motion Studio Pro iPad

Hreyfimyndagerðarforrit sem nýtir svokallaða "stop motion" aðferð. Notendur taka ljósmyndir í röð og forrritið setur þær saman í stutt myndskeið. Hægt er að vinna með leir, leikföng, teikningar eða aðra hluti og búa til eigin hreyfimyndir. Smáforritið er einfalt í notkun og hengar vel fyrir grunnskólanemendur. 

Sjá nánar um Stop Motion Studio Pro

Til stendur að taka smáforritið Stop Motion Studio Pro í notkun í skólastarfi í Garðabæ. Nemendur koma ekki sjálfir fram í kvikmyndunum heldur eru hlutir notaðir og stundum leir sem myndefni. Kvikmyndirnar vistast á námstæki sem nemendur hafa til afnota. 

Smáforritið styður vel við skapandi nám, samvinnu og sjálfstæð vinnubrögð. Nemendur læra að gera handrit, skipuleggja verkefni, setja sér markmið og vinna eftir tímaáætlun. Stop motion kvikmyndagerð hentar mjög vel í para og hópavinnu, ræða hugmyndir og finna lausnir. Nemendur fá tækifæri til að æfa sig í nýsköpun, styrkja sjálfstæði og upplifa aðferðir sem gera nám bæði skemmtilegt og uppbyggilegt.   

Smáforritið þarf ekki nettengingu til að virka og engin vinnsla persónugreinanlegra upplýsinga fer fram við notkun.

Smelltu hér til að skoða áhættugreiningu hugbúnaðarins á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Sterkari út í lífið

Sterkari út í lífið er íslenskt fræðsluefni sem er bæði smáforrit og vefur sem er hugsað sem stuðningur fyrir foreldra, kennara og fagfólk við að efla sjálfsmynd, líðan og félagsfærni barna og unglinga.

Verkefnið inniheldur: 

  • Verkfærakistur með samtalsleiðum og verkefnum fyrir heimili og skóla (grunnstig, miðstig, unglingastig). 
  • Bekkjarsáttmála sem hjálpar heimilum og skóla að samræma væntingar og reglur.
  • Hugarró-smáforritið með stuttum núvitundar-, samkenndar- og slökunaræfingum.

Verkefnið er unnið í víðtæku samstarfi sveitarfélaga, fagaðila, Heimilis og skóla og fleiri. Framkvæmdaraðili verkefnisins er Sálfræðistofan Höfðabakka.  

Sjá nánar um Sterkari út í lífið

Til stendur að taka í notkun Sterkari út í lífið. Á vefsíðunni og í smáforritinu er að finna mikinn fróðleik um fjölskylduna, líkamsímynd, sjálfsmynd og líðan og skjámiðla. Verkfærakistunni er skipt upp í  grunnstig, miðstig og unglingastig sem er svo skipt í eftirfarandi undirflokka; Bjargráð, Félagsfærni, Gagnrýnin hugsun, Gildin í lífinu, Hugsanir og tilfinningar, Líkamsmynd, Núvitund og hugarró og Samkennd. 

Kennslufræðilegur rökstuðningur
Sterkari út í lífið byggir á viðurkenndum viðmiðum um félagsfærni, sjálfsstjórn og einbeitingu. Með markvissri notkun er unnið að því að efla sjálfsstjórn, einbeitingu, félagsfærni og vellíðan nemenda með stuttum æfingum.  

Engin vinnsla persónugreinanlegra upplýsinga fer fram við notkun.     

Smelltu hér til að skoða áhættugreiningu hugbúnaðarins á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Sway

Veflægur kynningar- og umbrotshugbúnaður til að gera einfaldar vefsíður t.d. fréttabréf, leiðbeiningar, glærusýningar, bæklinga og kynningar.  

Sjá nánar um Sway

Til stendur að taka vefhugbúnaðinn Sway í notkun í skólastarf í Garðabæ. Sway er hluti af kjarnahugbúnaði Microsoft. Hugbúnaðurinn verður eingöngu aðgengilegur starfsfólki og er aðalmarkmiðið að miðla upplýsingum úr skólastarfinu, t.d. fréttabréfum með texta, myndum og myndskeiðum. 

Þegar myndir og myndskeið af börnum er deilt í hugbúnaði eins og Sway telst það vinnsla persónuupplýsinga skv. persónuverndarlögum nr. 90/2018. Garðabær er með vinnslusamning við Microsoft og eru öll gögn vistuð innan Evrópu. Gögn sem nýtt eru í Sway eru fyrst vistuð í Microsoft OneDrive eða Teams og er deilt þaðan. Starfsfólk Garðabæjar vinnur eftir reglum um mynda- og hljóðupptökur í skólastarfi. Samþykki foreldra á myndatökum og myndbirtingum þarf að liggja fyrir. 

Undralingur

Lifandi lestrarbækur á íslensku.  #leikskóli #yngsta_stig #lestur #læsi

Sjá nánar um Undraling

Undralingur er smáforrit fyrir iPad sem býður upp á nýja tegund af gagnvirkum lestrarbókum á íslensku fyrir krakka sem eru að læra að lesa. Smáforritið er hannað til að styðja við lestrarnám og auka lesskilning með því að gera lesturinn lifandi og áhugaverðan. Notendur geta fylgst með textanum myndgerast og kveikja á hreyfingum, hljóðum og óvæntum atburðum inni í sögunum. 

Til að mæta ólíkum þörfum barna er meðal annars hægt að láta forritið lesa erfið orð bókstaf fyrir bókstaf á eigin hraða. Að auki er hægt að velja um mismunandi erfiðleikastig og stilla lestrarupplifunina eftir þörfum. Lesendur geta auk þess leyst skemmtilegar gagnvirkar þrautir sem eru fléttaðar inn í söguþráðinn.