„Allir með“ leikarnir
Leikarnir eru samstarfsverkefni og þeir aðilar sem koma að framkvæmd þess eru Íþrótta-og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Knattspyrnusamband Íslands, Handboltasamband Íslands, Körfuknattleikssamband Íslands, Fimleikasamband Íslands, Frjálsíþróttasamband Íslands og Íþróttasamband fatlaðra.
Leikarnir fara fram laugardaginn 9. nóvember bæði í Laugardalshöllinni og fimleikasal Ármanns. Íþróttaálfurinn mætir á svæðið og stýrir deginum. Allir þátttakendur fá brúsa merktan leikunum og boðið verður upp á pitsuveislu í hádeginu þar sem einnig verða kynningar á öðrum íþróttagreinum. Öll fjölskyldan er velkomin með.
Þáttökugjald á leikana 1.500 krónur og skráning fer fram hér.