• 25.10.2019, 17:30 - 19:00, Hönnunarsafn Íslands

Anna María Pitt - innflutningsboð kl. 17:30

  • Verk eftir Önnu Maríu Pitt

Nú tekur silfursmiðurinn Anna María Pitt yfir vinnustofurýmið í safnbúð Hönnunarsafns Íslands. Innflutningsboð verður henni til heiðurs í Hönnunarsafninu föstudaginn 25. október kl. 17:30 -19 og eru allir velkomnir.

Anna María útskrifaðist frá New Buckinghamshire háskólanum í Bretlandi í silfursmíði og skartgripahönnun. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga og þróað með sér afgerandi stíl í skartgripahönnun sem byggir á formum og mynstrum úr náttúrunni. Vinnustofudvölin stendur til 26. janúar 2020 og er einnig sölusýning þar sem gestir geta verslað beint af hönnuðinum.