• 31.12.2019, 20:30, Álftanes, nærri strönd norðan við Gesthús

Áramótabrenna á Álftanesi

Tvær áramótabrennur verða í Garðabæ, ein við Sjávargrund og önnur á Álftanesi. 

Tvær áramótabrennur verða í Garðabæ, ein við Sjávargrund og önnur á Álftanesi.


Á Álftanesi verður gamlársbrennan nærri ströndinni norðan við Gesthús. Aðkoma er frá Bakkavegi. Kveikt verður í brennunni kl. 20.30. Brennan er í umsjón UMFÁ.

Kort á Google Maps sem sýnir Bakkaveg.

 

Kveikt verður í brennunni við Sjávargrund kl. 21 á gamlárskvöld 31. desember. Knattspyrnudeild Stjörnunnar sér um brennuna en Hjálparsveit skáta í Garðabæ sér um flugeldasýningu.  Sjá nánar hér.