Áramótabrenna við Sjávargrund
Tvær áramótabrennur verða í Garðabæ, ein við Sjávargrund og önnur á Álftanesi.
Tvær áramótabrennur verða í Garðabæ, ein við Sjávargrund og önnur á Álftanesi.
Kveikt verður í brennunni við Sjávargrund kl. 21 á gamlárskvöld 31. desember. Knattspyrnudeild Stjörnunnar sér um brennuna en Hjálparsveit skáta í Garðabæ sér um flugeldasýningu.
Sjávargrund á Google Maps - korti (ATH slóð á kort sýnir hvar gatan Sjávargrund er en brennan sjálf er staðsett vestan við nær sjónum við Strandstíginn)
Á Álftanesi verður gamlársbrennan nærri ströndinni norðan við Gesthús. Aðkoma er frá Bakkavegi. Kveikt verður í brennunni kl. 20.30. Brennan er í umsjón UMFÁ. Sjá nánar hér.