Dagur Norðurlandanna 23. mars - norrænir krimmar á bókasafninu - norrænir réttir í Mathúsi Garðabæjar
Dagur Norðurlandanna er haldinn hátíðlegur 23. mars ár hvert.
Dagur Norðurlandanna hefur um árabil verið tileinkaður norrænni samvinnu. Þennan dag 1962 hittust ríkisstjórnir landanna í Helsinki höfuborg Finnlands til að skrifa undir samning um náið og skuldbindandi samstarf.
Vegna Covid ástandsins hefur verið ákveðið að norrænu félögin á Norðurlöndunum hafi “nordiskt gæstebud” þennan dag. Norræna félagið í Garðabæ hefur samið við Mathús Garðabæjar á Garðatorgi um að dagana 23., 24. og 25. mars verði boðið upp á norræna rétti á matseðli hússins: Rækjukokteil, þorsk að hætti Færeyinga og rjómapönnuköku í dessert.
Aðra rétti á norræna matseðlinum er hægt að sjá ásamt uppskriftum á vef Norræna félagsins á Íslandi.
Í tilefni af degi Norðurlandanna stendur Bókasafnið í Garðabæ fyrir kynningu á norrænum glæpasögum. Nánari upplýsingar má sjá hér á vef safnsins.