• 21.3.2021, 13:00, Hönnunarsafn Íslands

Einar Þorsteinn - leik og fræðsluborð

Sunnudaginn 21. mars kl. 13 verður formlega tekið í notkun nýtt leik- og fræðsluborð tileinkað og innblásið af hugarheimi og verkum Einars Þorsteins Ásgeirsson, hönnuðar og stærðfræðings. Ath. að skrá þarf fullorðna með kennitölu á opnunina.

Sunnudaginn 21. mars kl.13 verður formlega tekið í notkun nýtt leik- og fræðsluborð tileinkað og innblásið af hugarheimi og verkum Einars Þorsteins Ásgeirsson, hönnuðar og stærðfræðings. Ath. að skrá þarf fullorðna með kennitölu á opnunina.

Borðið er ætlað fyrir alla fjölskylduna og hvetur til sköpunar, tilrauna og uppgötvana tengdum stærðfræði.

Verkefnið er samstarf Hönnunarsafns Íslands við Jóhönnu Ásgerisdóttur myndlistarmann sem hefur sérhæft sig í miðlun stærðfræði með aðferðum lista og
Hreinn Bernharðsson, vöruhönnuður.

Borðið henta öllum aldurshópum, og alls ekki skilyrði að vera stærðfræðiséní!

Jóhanna mun leiða gesti í gegnum stærðfræði ævintýri á þessari frumsýningu

Verkefnið var styrkt af Barnamenningarsjóði 2020. Vinsamlegast skráið fullorðna þátttakendur með kennitölu og símanúmeri í netfangið honnunarsafn@honnunarsafn.is