• 2.3.2019, 13:00, Bókasafn Garðabæjar

Fjölskyldustund kl. 13

Í fjölskyldustund laugardaginn 2. mars kl.13 í Bókasafni Garðabæjar mun Þóranna Gunný Gunnarsdóttir stýra skemmtilegri sögu- og söngstund fyrir 2-6 ára börn.

Í fjölskyldustund laugardaginn 2. mars kl.13 í Bókasafni Garðabæjar mun Þóranna Gunný Gunnarsdóttir stýra skemmtilegri sögu- og söngstund fyrir 2-6 ára börn. Hún mun verða með líflegan upplestur og syngja og leika með börnunum. Þóranna Gunný útskrifaðist af leiklistarbraut FG, hefur stundað tónlistar- og söngnám, kennir á söngleikjanámskeiðum hjá Draumum, starfar á leikskóla, stundar sálfræðinám og er formaður Stúdentaleikhússins. Allir hjartanlega velkomnir.