• 27.6.2020, 9:00 - 22:00, Garðabær

Forsetakosningar - kjörstaðir í Garðabæ

  • Bessastaðir

Forsetakosningar verða haldnar laugardaginn 27. júní nk. Í Garðabæ verður kosið á tveimur stöðum í íþróttahúsinu Mýrinni við Skólabraut og í nýjum hátíðarsal Álftanesskóla við Breiðumýri. Kjörfundur hefst kl. 09:00 og stendur til kl. 22:00 þann 27. júní.

Forsetakosningar verða haldnar laugardaginn 27. júní nk. Í Garðabæ verður kosið á tveimur stöðum í íþróttahúsinu Mýrinni við Skólabraut (keyrt inn af Bæjarbraut, Mýrin er mitt á milli Hofsstaðaskóla og Fjölbrautaskólans í Garðabæ) og í nýjum hátíðarsal Álftanesskóla við Breiðumýri. Kjörfundur hefst kl. 09:00 og stendur til kl. 22:00 þann 27. júní.

Ástæða þess að kjörfundur er færður í íþróttahúsið Mýrina (í staðinn fyrir Fjölbrautaskólann í Garðabæ eins og í síðustu kosningum) er til að koma til móts við tilmæli yfirkjörstjórnar um að umferð kjósenda sé með þeim hætti að inn- og útgangur úr kjördeildum sé ekki sá sami. Þá verða fjarlægðartakmarkanir tryggðar eins og kostur er. Kjósendur ganga inn um aðalinngang en gengið verður út um hurðir á vesturgafli hússins í Mýrinni.

Upplýsingar um kosningarnar eru að finna á kosningavef Stjórnarráðsins, kosning.is

Einnig má finna hér á vef Garðabæjar upplýsingar um kjördeildir og kjörskrá.