Fundur bæjarstjórnar Garðabæjar
Næsti fundur bæjarstjórnar Garðabæjar verður haldinn fimmtudaginn 18. mars kl. 17 í Sveinatungu. Fundurinn verður í beinu streymi á vef Garðabæjar.
Fundir bæjarstjórnar Garðabæjar eru fyrsta og þriðja fimmtudag hvers mánaðar og hefjast kl. 17.
Fundir bæjarstjórnar eru haldnir í Sveinatungu, fundarsal bæjarstjórnar á Garðatorgi 7.
Fundir bæjarstjórnar eru öllum opnir með fyrirvara um fjöldatakmarkanir vegna sóttvarnarreglna.
Næsti fundur bæjarstjórnar
Boðað er til næsta fundar bæjarstjórnar fimmtudaginn 18. mars 2021 kl. 17:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi 7.
Fundarboð bæjarstjórnar Garðabæjar 18. mars 2021.
Fundargerð má sjá hér á vef Garðabæjar daginn eftir fund.
Bein útsending: Fundurinn verður í beinu streymi af vef Garðabæjar, sjá hér.
Upptaka af fundinum verður einnig aðgengileg á vefnum.