• 21.11.2024, 10:30 - 11:30, Bókasafn Garðabæjar

Fyrirlestur fyrir nýja eða verðandi foreldra

Barnið heim og hvað svo? er yfirskrift fyrirlestursins.

Þessi fræðsla er hluti af Foreldramorgnum á Bókasafni Garðabæjar, en alla fimmtudagsmorgna frá 5. september til og með 12. desember býður bókasafnið börn og foreldra þeirra velkomin á skipulagða dagskrá.

Barnið heim og hvað svo? er yfirskrift fyrirlesturs sem Hrafnhildur Helgadóttir hjúkrunarfræðingur heldur fyrir nýja eða verðandi foreldra. Á þessum Foreldramorgni mun Hrafnhildur sem fjalla um algengar áskoranir við það að koma heim með nýtt barn og til hvaða bjargráða hægt er að grípa til.

Áhersla er lögð á hvernig hægt sé að byggja sig upp fyrir foreldrahlutverkið til framtíðar, með mikilvægi sterkra tengsla í fyrirrúmi.

Viðfangsefni eru meðal annars: breytt sjálfsmynd, andlegar áskoranir, bjargráð, tengslamyndun, foreldrasamviskubitið og uppeldisleiðir.